Bygg
Bygg

Mannlíf

FS-ingur vikunnar: Gefst aldrei upp
Föstudagur 12. maí 2023 kl. 06:45

FS-ingur vikunnar: Gefst aldrei upp

FS-ingur vikunnar:
Nafn: Elín Bjarnadóttir
Aldur: 16 ára
Námsbraut: Fjölgreinabraut
Áhugamál: Körfubolti og að vera með vinum og fjölskyldu

Elín Bjarnadóttir er á kafi í körfubolta og á sér þann draum heitastan að komast í atvinnumennsku í sportinu. Elín er FS-ingur vikunnar.

Hvað ert þú gömul? Sextán ára.

Hvers saknar þú mest við grunnskóla? Hvað það var chill og sakna líka bekkjarins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS? Því það er betra fyrir körfuna og einfaldast.

Hver er helsti kosturinn við FS? Hvað þú kynnist mörgum.

Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Mjög gott.

Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Arnór út af körfu.

Hver er fyndnastur í skólanum? Örugglega Margrét Norðfjörð.

Hvað hræðist þú mest? Köngulær.

Hvað er heitt og hvað er kalt þessa stundina? Metta vörurnar eru mjög heitar, niðurþröngar gallabuxur er kalt.

Hvert er uppáhaldslagið þitt? When I Was Your Man með Bruno Mars.

Hver er þinn helsti kostur? Ég er mjög skilningsrík.

Hvaða forrit eru mest notuð í símanum þínum? TikTok og Hay Day.

Hver er stefnan fyrir framtíðina? Verða atvinnumaður i körfu.

Hver er þinn stærsti draumur? Að komast í atvinnumennsku í körfunni.

Ef þú ættir að lýsa sjálfri þér í einu orði hvaða orð væri það og af hverju? Þrautseig því ég gefst aldrei upp.