FS-ingur: Loksins er kominn hollur skyndibitastaður í þennan bæ
Lovísa Guðjónsdóttir er Keflavíkurmær og stefnir á stúdentinn en ætlar svo í heimsreisu. Hún er með mikla frestunaráráttu og myndi vilja leyfa böll á föstudagskvöldum.
Á hvaða braut ertu? Ég er á Félagsfræðibraut
Hvaðan ertu og aldur? Ég er frá Keflavík og verð 19 ára núna í nóvember
Helsti kostur FS? Fullt af frábæru fólki og félagslífið
Áhugamál? Áhugamálin mín eru að ferðast, kynnast fólki og bara gera það lætur mig líða vel og mér finnst skemmtilegt
Hvað hræðistu mest? Geitungar!
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Úff þessi er erfið, svo mikið af flottu og hæfileikaríku fólki í FS.
Hver er fyndnastur í skólanum? Það er ekki spurning en það er Sigurður Smár. Hann fær mann alltaf til að hlægja.
Hvað sástu síðast í bíó? Straight outta compton! Mæli mjög mikið með henni
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Mér finnst það mjög fínt eins og það er en væri alveg til í meiri fjölbreytni. Verð alveg soldið þreytt að fá mér alltaf það sama í 10-kaffinu
Hver er þinn helsti galli? Ég er með mjög mikla frestunaráráttu sem hjálpar ekki alveg þegar það er mikið að gera.
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Ég nota mest Snapchat, Instagram og Facebook
Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Fleiri veikindadaga og leyfa böll á föstudögum
Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Ég er með svakalegan ávana sem er mjög mikið gert grín af en það er að ég segi soldið mikið HA í setningum sem allir taka eftir nema ég sem er bara fyndið
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Mér finnst það bara frábært! Það er allt á uppleið og þetta skólaár er búið að fara ýkt skemmtilega af stað og ég get ekki beðið eftir komandi tímum því fólkið sem er með mér í stjórn eru algjörir snillingar. Við ætlum við að gera okkar allra besta að gera félagslífið sem best.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Útskrifast sem stúdent. Svo er planið að fara í heimsreisu og svo sé ég hvert leiðin liggur.
Hver er best klædd/ur í FS? Sylvía Rut er alltaf mjög fín.
Eftirlætiskennari: Svo margir kennarar sem eru í uppáhaldi! En Kolla og Íris standa uppúr!
Fag í skólanum: Sálfræði hjá Elísabetu
Sjónvarpsþættir: Mistresses, Grey's anatomy og auðvitað Bold and the Beautiful
Kvikmynd: Intouchables finnst mér flott mynd
Hljómsveit/tónlistarmaður: Queen Beyonce!
Leikari: Channing Tatum eftir Magic Mike
Vefsíður: Þegar ég er í tölvunni eyði ég mesta tímanum á Facebook svo finnst mér mjög gaman að skoða skemmtileg blogg
Flíkin: Þórsmörk úlpan mín frá 66 Norður bjargar mér alveg á veturna
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)? Frozen er alveg lúmskt gott lag
Skyndibiti: Lemon! Loksins kominn hollur skyndibitastaður í þennan bæ