Bygg
Bygg

Mannlíf

Fs-ingur: Hræddur við Ebóluna
Mánudagur 20. október 2014 kl. 18:00

Fs-ingur: Hræddur við Ebóluna

Kristinn Sveinn Kristinsson er 18 ára nemi á náttúrufræðibraut FS. Hann segist vera hræddur um að Ebólu-veiran nái bólfestu á Íslandi. Hann fær ekki ógeð á matnum á Olsen Olsen og eftirlætisflíkin hans eru inniskórnir.

Á hvaða braut ertu?
Náttúrufræðibraut.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hvaðan ertu og aldur?
Ég er 18 ára og ég flutti úr Garðinum í Njarðvík í 8.bekk.

Helsti kostur FS?
Fyrir mér er það stríðsnefndin og félagslífið.

Hjúskaparstaða?
Á pikkföstu.

Hvað hræðistu mest?
Ég er skíthræddur um að þessi Ebóla komi til Íslands.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna?
Ásgeir Jóns fyrir að vera fyrsti Íslendingurinn með Ebóluna.

Hver er fyndnastur í skólanum?
Þeir eru nokkrir.

Hvað sástu síðast í bíó?
Annabell hún var rosaleg!

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Það væri allt betra ef það væri selt kók í dós.

Hver er þinn helsti galli?
Get ekki gert hlutina strax geri þá frekar seinna, betra seint en aldrei.

Hvað er heitasta parið í skólanum?
Guðbjörg Ósk og Krissi.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?
Að það mætti hringja sig inn veikan hvenær sem er ekki bara fyrir kl. 10.

Áttu þér viðurnefni?
Strákarnir kalla mig Kidda.

Hvaða frasa eða orð notar þú oftast?
Nehh í staðinn fyrir djók, pirrandi ávani.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Það er mjög fínt.

Áhugamál?
Mikill fótboltaáhugamaður.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Út að læra einhvað sniðugt.

Ertu að vinna með skóla?
Ég vinn hjá Geysi.

Hver er best klædd/ur í FS?
Það klæða sig margir flott en sem mér dettur í hug er Hjörtur.

Eftirlætis

Kennari: Simon Cramer.

Sjónvarpsþættir: Family Guy, Walking Dead, How I met your mother og fleiri.

Hljómsveit/tónlistarmaður: Kendrick Lamar og fleiri.

Kvikmyndin: Þær eru margar en Green street hooligans er góð.

Leikari: Will Ferrell, Zach Galifianakis og Brad Pitt.

Vefsíða: Fótbolti.net, Deildu.net og Facebook.

Flíkin: Inniskórnir mínir.

Skyndibiti: Olsen, fæ ekki ógeð á honum.

Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)?: Ég hlusta á allskonar tónlist og er ekki að leyna neinu.