FS-ingar á Íslandsmóti iðngreina
Níu nemendur kepptu fyrir jönd skólans.
Níu nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja tóku þátt í Íslandsmóti iðngreina, sem haldið var nýverið í Kórnum í Kópavogi. Þeir stóðu sig með prýði þótt þeir hafi ekki náð verðlaunasæti í þetta sinn.
Fjórir nemendur kepptu í hárgreiðslu, þær Bára Sif Magnúsdóttir, Kamila Bober, Sandra Júlíana Karlsdóttir og Tinna Björg Ísaksdóttir. Tveir keppendur kepptu í rafvirkjun, þeir Heiðar Hönnuson og Guðni Ágúst Bjarnason og keppendur í trésmíði voru einnig tveir, Ellert Björn Ómarsson og Pétur Ásgeirsson. Einn keppandi tók þátt í forritun en það var Halldór Jens Vilhjálmsson.