Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Frumsýning hjá leikfélaginu
Laugardagur 31. janúar 2004 kl. 16:48

Frumsýning hjá leikfélaginu

Barnaleikritið „Með álfum og tröllum“var frumsýnt í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17 í dag fyrir fullu húsi. Höfundur verksins er Steffan Westerberg en hann hefur skrifað mörg leikrit fyrir börn. Þýðandi er Úlfar Hjörvar en leikstjóri er hinn landsþekkti leikari Steinn Ármann Magnússon, en þetta er annað verkefni hans hjá Leikfélaginu. Með álfum og tröllum fjallar um ungan dreng Jóakim sem fær ævintýrabók að gjöf og á einhvern ævintýralegan hátt dregst hann inn í söguna og lendir í ýmsum ævintýrum. Jóakim er leikinn af Atla Kristjánssyni.  Í ævintýrinu koma fram hinar ýmsu verur s.s tröll, álfar, prinsessa, álfkona og aðrar skemmtilegar persónur úr heimi ævintýranna. Leikarar eru á öllum aldri og segjast þeir aldrei hafa kynnst jafn skemmtilegu leikriti fyrir börn. Sviðsmyndin sem er unnin af  hluta leikaranna er hin glæsilegasta og sömu sögu má segja um búningana en þeir eru einnig hannaðir og unnir af leikurunum sjálfum.
Næsta sýning á leikritinu er á morgun sunnudag.

VF-ljósmynd/JKK: Leikarar og leikstjóri fengu rósir að gjöf eftir frumsýninguna í dag.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024