Frumsýning á morgun
Hátíðartónleikar Ljósanætur 2013 - Hanakambar, hárlakk og herðapúðar
Hátíðartónleikar Ljósanætur, Með blik í auga III – Hanakambar, hárlakk og herðapúðar, verða frumsýndir miðvikudagskvöldið 4. september kl. 20:00 í Andrews leikhúsi á Ásbrú. Þannig er tekið smá forskot á sæluna áður en dagskrá Ljósanætur skellur á.
Þetta er lokasýning þríleiksins Með blik í auga sem slegið hefur í gegn á Ljósanótt en að þessu sinni verður tónlist og tíðarandi áratugarins 1980 - 1990 í brennidepli. Alls verður boðið upp á fernar sýningar,önnur. sýning verður fimmtudagskvöldið 5. september kl. 20:00 og tvær sýningar verða sunnudaginn 8. september kl. 16:00 og 20:00.
Miðasala er á midi.is