Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Frumsýna Dirty Dancing á fimmtudag
  • Frumsýna Dirty Dancing á fimmtudag
Þriðjudagur 18. febrúar 2014 kl. 09:43

Frumsýna Dirty Dancing á fimmtudag

– Æfingar á fullu í Andrews menningarhúsinu á Ásbrú.

Vox Arena, sem er leikfélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja, og NFS, Nemendafélag Suðurnesja eru þessa dagana að setja upp söngleikinn Dirty Dancing. Frumsýning verður á fimmtudagskvöld í Andrews menningarhúsinu á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Söngleikurinn er byggður á samnefndri kvikmynd sem flestir þekkja. Myndin sló í gegn árið 1987 en sagan gerist sumarið 1963. Í söngleiknum fáum við að kynnast Houseman fjöldskyldunni sem eyðir sumarfíinu sínu á Hótel Kellerman. Leikritið fjallar að mestu um Lillu, yngri systirina og danskennara hótelsins, hinn heita og kvennsama Johnny. Milli þeirra kveiknar funi sem erfitt er að slökkva og þurfa þau að takast á við fordóma , stéttarskiptingu, vina og fjölskyldu vandamál sem og erfiðar ákvaðanir líkt og flest ungt fólk þekkti 1963 og enn í dag árið 2014.

Þetta er orku mikill söngleikur troðfullur af gríni, söng og stórkostlegum dansatriðum.

Rúmlega 40 manns koma að sýningunni á einn eða annan hátt. Leikstjóri er Gunnella Hólmarsdóttir og danshöfundur er Ásta Bærings.

Frumsýning verður 20. febrúar og verður sýnt í Andrews Theatre.

Hér að neðan er tónlistarmyndband undir lagið „Stórkostleg Stund“ sem tekið var upp á veitingastaðnum Olsen Olsen næturnar 18. og 19. janúar.

Meðfylgjandi ljósmyndir voru teknar á æfingu í gærkvöldi. Nánar verður fjallað um sýninguna í Víkurfréttum á fimmtudag og í Sjónvarpi Víkurfrétta á fimmtudagskvöld.



Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024