Frostrósir í Andrews í Reykjanesbæ 2. desember
Frostrósir halda í ár upp á tíunda tónleikaárið og blása til sannakallaðrar tónleikaveislu á aðventunni. Líkt og undanfarin ár munu þau gera víðreist um landið og í tilefni afmælisins verða allir landshlutar sóttir heim. Frostrósir sóttu Reykjanesbæ heim í fyrsta skipti í fyrra og verður leikurinn endurtekinn í ár. „Andrews leikhús er frábært tónleikahús, þar myndaðist einstaklega skemmtileg stemming og við hlökkum til að koma aftur í Reykjanesbæ“ segir Samúel Kristjánsson, framkvæmdastjóri Frostrósa. Flutt verða vinsælustu lög Frostrósa í hátíðlegri og veglegri umgjörð.
Tónleikar Frostrósa í Andrews leikhúsi í Reykjanesbæ verða haldnir föstudaginn 2. desember kl. 21:00.
Flytjendur í tónleikaferð Frostrósa um landið verða þau Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Hera Björk, Margrét Eir og Vala Guðna. Með þeim syngja Kór Holtaskóla og Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, og félagar úr Stórhljómsveit Frostrósa leika undir stjórn Karls O. Olgeirssonar.
Miðasala hefst mánudaginn 3. október en sérstök forsala fyrir vini Frostrósa á Facebook og félaga á póstlista Frostrósa verður föstudaginn 30. september. Nánari upplýsingar á www.frostrosir.is