Frístundahelgi í Reykjanesbæ 26. apríl
Nú líður óðum að hinni árlegu frístundahelgi og undirbúningur er þegar hafinn og miðað við laugardaginn 26. apríl. Í ár verður lögð áhersla á að kynna menningar- og tómstundahópana sem starfa innan Reykjanesbæjar og fer kynningin að mestu fram á Vallarheiði en einnig að einhverju leyti í húsnæði viðkomandi hópa í öðrum hverfum bæjarins og verður það auglýst betur síðar.
Handverkssýningin verður að þessu sinni haldin í Hobby Center, Víkingabraut 773 á Vallarheiði og tækifærið um leið notað til að vígja þetta nýja handverkshús sem menningarhópum í Reykjanesbæ hefur áskotnast. Sýningin verður opin laugardaginn 26. apríl frá kl. 13.00 til 17.00 og er að sjálfsögðu sölusýning. Þeir aðilar sem hyggjast taka þátt í sýningunni verða að tilkynna þátttöku fyrir 18. apríl.
Undirbúningur Frístundahelgarinnar er í höndum Tómstundabandalagsins, Menningarsviðs og Íþrótta- og tómstundasviðs en verkefnisstjóri er Ásmundur Friðriksson. Forsvarsmenn þeirra félaga sem hafa áhuga á að vera með og eru hvattir til að hafa samband við Ásmund fyrir 18. apríl þurfa að tilkynna þátttöku í síma 894-3900 eða á netfangið [email protected]