Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Friðrik Ómar með tónleika í Keflavíkurkirkju
Miðvikudagur 26. nóvember 2008 kl. 14:27

Friðrik Ómar með tónleika í Keflavíkurkirkju

Söngvarinn Friðrik Ómar heimsækir Keflavíkurkirkju í tónleikaferð sinni um landið þann í dag, 26. nóvember. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og eru miðar aðeins seldir við innganginn. Miðaverð aðeins 1800.-

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Friðrik þarf vart að kynna en þessi 27 ára gamli söngvari hefur skipað sér í röð fremstu söngvara landsins.

Þetta er í fyrsta sinn sem Friðrik fer eins síns liðs um landið en hann hefur áður sungið með Guðrúnu Gunnarsdóttur og fylgt eftir þrem gullplötum þeirra sl. ár með því að syngja í kirkjum landsins. Að þessu sinni er það Grétar Örvarsson sem leikur undir á píanó og Greta Salóme Stefánsdóttir á fiðlu. Á efnisskránni eru meðal annars lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði vinsæl og fleiri þekkt dægurlög sem Friðrik hefur gaman af að flytja.


“Það er alltaf gaman að syngja suður með sjó. Ég hef sungið við ýmsar kirkjuathafnir í þessari fallegu kirkju en þetta er í fyrsta sinn sem ég kem og held tónleika þar. Ég get lofað afar hugljúfum tónleikum. Samspil piano og fiðlu er rosalega fallegt. Áhorfendur gleyma stund og stað og af fyrri tónleikum okkar að dæma fer folk mun yfirvegaðra og bjartsýnna út um kirkjudyrnar en þegar það kom inn. Það er líka gott að koma inn í kirkjuna og hlýða á tónlist. Maður nær vissri slökun sem er hverjum manni holl. Svo er aldrei að vita nema að ég syngi eitthvað jólatengt og af eurovision slögurum og þá færist smá fjör í leikinn!" segir Friðrik Ómar og hlær.