Framlag Suðurnesja til Eurovision
Lag Elízu Newman
Keflvíkingurinn Elíza Newman er meðal þátttakennda í undankeppni Eurovision að þessu sinni en lag hennar, Ég syng! er meðal þeirra 12 íslensku laga sem keppast um að komast í lokakeppnina sem fram fer í Svíþjóð í vor.
Elíza og Gísli Kristjánsson sömdu enskan texta við lagið en Hulda Geirsdóttir systir Elízu snaraði svo textanum yfir á íslensku. „Hún er svo góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og þetta tókst svona fjári vel,“ sagði Elíza í samtali við VF í nóvember s.l.. „Þetta er svona poppslagari sem ég samdi með Gísla Kristjánssyni og Ken Rose í London.Við vissum ekki alveg hvað við áttum að gera við það fyrr en Eurovision kom inn í myndina og þá vorum við sannfærð um að það myndi passa vel í það,“ sagði Elíza einnig í viðtalinu.
Ung og efnileg söngkona, Unnur Eggertsdóttir flytur lagið en það má heyra hérna að neðan.