Fræðsluganga við Þorbjörn á morgun
Á alþjóðadegi landvarða á morgun, 31. júlí kl. 13, bjóða landverðir á Reykjanesi upp á létta tveggja klukkustunda fræðslugöngu við rætur Þorbjarnar í Grindavík. Gengið verður frá bílastæðinu á Selhálsi við hitaveitutankinn. Meðan á göngu stendur munu landverðir fræða gesti um náttúruna og störf landvarða. Allir eru velkomnir í gönguna.