Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Fræddu forvitin ungmenni á forvarnadegi
Kristján Geirsson, lögreglumaður, fræðir unga fólkið um alvarleg áhrif hraða- og ölvunaraksturs.
Fimmtudagur 2. október 2014 kl. 10:04

Fræddu forvitin ungmenni á forvarnadegi

Vel heppnaður dagur í 88 Húsinu í gær.

Um 150 nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja tóku þátt í árlegum Forvarnardegi ungra ökumanna sem var haldinn í 88 húsinu í gær. Markmiðið með verkefninu er að vekja ungmennin til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að fá bílpróf, fækka umferðaslysum og auka öryggi í umferðinni.

Ungmennin fengu fræðslu um afleiðingar umferðarlagabrota, sektir, tjónaskyldu og brot gegn 3ja aðila. Þau prufuðu ölvunargleraugu auk margra annarra verkefna sem þeim stóð til boða að leysa og tengjast umferðinni. Sviðsett var umferðarslys á planinu við 88 Húsið og nemendur fengu að sjá hvernig lögregla og sjúkraflutningamenn athafna sig þegar slys verður og klippa þarf bíl í sundur.

Eins og undanfarin ár voru grillaðar pylsur handa öllum þátttakendum.

Forvarnardagur ungra ökumanna er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Tryggingamiðstöðvarinnar.

Víkurfréttir voru á staðnum og tóku meðfylgjandi myndir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ölvunargleraugun prófuð.

Ungmennin fengu fræðslu um tryggingamál.

Allt að verða tilbúið fyrir pylsupartýið. Vantar bara pylsurnar. :)

Þessi ungi hnokki leit út fyrir að vera efnilegur verðandi ökumaður. 

VF/Olga Björt