HSS
HSS

Mannlíf

Frábærir tónleikar Valdimars og lúðrasveitar TR
Valdimar og lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Andrews á kosningadaginn böðuð litaglöðum ljósum.
Sunnudagur 28. apríl 2013 kl. 13:09

Frábærir tónleikar Valdimars og lúðrasveitar TR

- fóru á kostum í Andrews leikhúsinu á Ásbrú á kosningadaginn.

Hljómsveitin Valdimar og Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fór á kostum á frábærum tónleikum í Andrews leikhúsinu á Ásbrú á sjálfan kjördaginn. Sveitirnar léku saman lög eftir hljómsveitina Valdimar og tókst afskaplega vel upp.


Valdimar sjálfur sagði á tónleikunum að hann gæti alveg vanist því að hafa 40 manna lúðrasveit á öllum tónleikum en saman léku hljómsveitin og lúðrasveitin 15 lög. Valdimar og Þorvaldur trommari stigu sín fyrstsu skref í lúðrasveit TR og sváfu meira að segja í sama rúmi þegar þeir voru ungir menn í tónleikaferðum sveitarinnar. Hljómsveitin Valdimar er af stærstum hluta sprottin út úr bæði tónlistarskólanum og lúðrasveitinni og þá eru margir af meðlimum Valdimars núna kennarar við tónlistarskólann. Valdarnir ásamt fleiri hljómsveitarmeðlimum Valdimars útsettu lögin sem flutt voru í troðfullum Andrews sal sem klappaði þeim lof í lófa fyrir frábæra frammistöðu.

Árið 2010 spratt hljómsveitin Valdimar fram á sjónarsviðið með útgáfu plötunnar Undraland og urðu í framhaldi af því fljótlega ein af vinsælustu hljómsveitum landsins. Í fyrra gáfu þeir svo út plötuna Um Stund sem fékk gríðarlega góðar viðtökur frá gagnrýnendum og naut mikilla vinsælda. Valdimar Guðmundsson sagði frá því á tónleikunum að báðar plötur sveitarinnar væru búnar að ná gullsölu en hvatti þá sem ekki höfðu keypt þær að gera það svo þær næðu platinum sölu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fleiri myndir frá á tónleikunum í Andrews má sjá í ljósmyndasafni VF. VF-myndir/pket.

Meðlimir Valdimars og Karen Sturlaugsson, stjórnandi lúðrasveitarinnar.