Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Miðvikudagur 22. desember 1999 kl. 20:09

FRÁBÆR JÓLADJASS HJÁ VEIGARI

Veigar Margeirsson trompetleikari hélt tónleika með léttum jóladjass í Ytri-Njarðvíkurkirkjuá laugardagskvöldið. Með honum léku Þórir Baldursson á píanó, Einar Scheving á trommur og Róbert Þórhallsson á bassa Á efnisskrá tónleikanna voru þekkt jólalög í útsetningum eftir Veigar. Hann hefur tvisvar áður haldið tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju og var húsfyllir í bæði skiptin. Fyrir tónleikana sagði Veigar að hann hafi alltaf langað til að leika jólalögin í léttum djassútsetningum. Tónleikargestir, sem voru fjölmargir, kunnu vel að meta það sem Veigar og hans menn höfðu fram að færa. Veigar lauk sérnámi s.l. vor í kvikmyndatónsmíðum og býr nú í Los Angeles þar sem hann starfar við tónsmíðar og útsetningar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024