Frábær dagur í Njarðvíkurskóla með Háskólalestinni
„Frábærum degi lokið hjá nemendum í 9. og 10. bekk í Njarðvíkurskóla eftir heimsókn frá Háskólalest Háskóla Íslands,“ segir á vef Njarðvíkurskóla í gær.
Eftir skólasetningu hjá Háskólalestinni í gærmorgun voru margar fjölbreyttar og spennandi vísindasmiðjur í boði fyrir nemendur. Smiðjunar voru í efnafræði, hljóðfræði, fornleifafræði, stjörnufræði, tómstunda- og félagsmálafræði og vísindaheimspeki.