Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Frá Úkraínu til Keflavíkur
Fimmtudagur 19. febrúar 2004 kl. 13:26

Frá Úkraínu til Keflavíkur

Fimmtudaginn 26. febrúar næstkomandi heldur Alexandra Chernyshova óperusöngkona tónleika í Duus-húsum, en undirleikari verður Gróa Hreinsdóttir. Alexandra er gift Jóni R. Hilmarssyni og búa þau í Keflavík.

Alexandra sem er 24 ára gömul er fædd í Úkraínu en hún fluttist til Íslands í október sl. Henni líkar vel við Ísland og íslendinga. „Þetta er frábært land og náttúran hér er einstök. Það eru líka miklar andstæður hér, bæði í veðri og í náttúrunni. Til dæmis eru eiginlega engin tré hér en fullt af flugum,“ sagði Alexandra í samtali við Víkurfréttir. Fyrir stuttu sá hún Norðurljósin í fyrsta sinn. „Það var einstakt að sjá þessi ljós flögra um himinhvolfið,“ segir Alexandra en hún stundar nám í Íslensku við Háskóla Íslands. Hvernig finnst henni að læra Íslensku? „Það er ekki svo erfitt en málið er mjög flókið, en mér finnst mjög gaman að læra íslensku.“

Alexandra lauk píanónámi árið 1993 og í framhaldinu fór hún í söngnám í tónlistaháskólanum Glier í Kíev þaðan sem hún lauk námi árið 1998. Á árunum 1997 til 2000 hefur Alexöndru verið boðið nokkrum sinnum á Master class námskeið til Hanno Blashke í Munchen. Alexandra hefur tekið þátt í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum og hátíðum, m.a. í Moldavíu og Þýskalandi. Frá árinu 1998 til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev. Í apríl árið 2002 var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í keppninni „Nýtt nafn“ í Úkraínu, en síðar það ár tók hún þátt í alþjóðlegri keppni í Grikklandi.

Á árunum 1999 til 2003 stundaði Alexandra söngnám í söngakademíunni Nezdanova í borginni Odessu í Úkraínu. Auk þess að ljúka söngnámi útskrifaðist hún einnig úr háskóla á sama tíma þar sem hún lagði áherslu á ensku, spænsku  og heimsbókmenntir.

Tónleikar Alexöndru í Duus-húsum eru þeir fyrstu þar sem hún kemur ein fram og henni hlakkar til. „Ég hef stundað söngnám sl. átta ár og söngurinn er það sem ég vil vinna við í framtíðinni,“ segir Alexandra og henni líkar vel við Reykjanesbæ. „Mér finnst gott að sjá hafið og vera nálægt því. Mér finnst líka fólkið hér vera gott og ég vona bara að fólkið mæti á tónleikana,“ segir Alexandra með bros á vör.

Myndin: Alexandra við píanóið heima hjá sér.

VF-ljósmynd/Héðinn Eiríksson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024