Samkaup hluthafafundur
Samkaup hluthafafundur

Mannlíf

Frá barni til barns
Fimmtudagur 12. apríl 2018 kl. 08:00

Frá barni til barns

- styrktartónleikar fyrir langveik börn í Reykjanesbæ

Styrktartónleikarnir „Frá barni til barns" í þágu langveikra barna í Reykjanesbæ verða haldnir næstkomandi laugardag, 14. apríl, í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.  Píanó-, harmonikku- og hljómborðsnemendur skólans efna til sex stuttra tónleika sem hefjast kl. 11 og verða á hálfa og heila tímanum til kl. 14. Tónleikarnir fara fram í Bergi, Hljómahöll. 
 
Listmarkaður verður opinn meðan á tónleikaröðinni stendur og rennur allur ágóði af sölu listaverka, hvort sem þau eru í orði, tónum, litum eða öðru formi, óskert til málefnisins sem stuðningur hinna fullorðnu við framtak barnanna. 
 
Listaverk eru byrjuð að berast á markaðinn jafnt frá áhuga- og atvinnulistamönnum og er almenningur í Reykjanesbæ hvattur til að skoða hvort þeir eigi í fórum sínum frumsamið hugverk, handverk, myndverk eða hvað annað af þessum toga sem viðkomandi vill gefa á listmarkaðinn til stuðnings þessu mikilvæga málefni.
 
Slík framlög má tilkynna í síma Tónlistarskólans 420 1400.
 
Að auki verður kaffihús á listmarkaðnum þar sem flutt verður tónlist af nemendum. Allur ágóði af sölu veitinga rennur sömuleiðis óskertur til málefnisins og eru allir hjartanlega velkomnir.
 
Hægt er að tryggja sér miða á tónleikana með frjálsum framlögum inn á reikning nr. 0142-15-010366, kt. 3006584829, en einnig verða seldir miðar við innganginn í Berg.
 
Söfnun beinna styrkja er hafin og hægt er að leggja framlag til langveikra barna í Reykjanesbæ inn á ofangreint reikningsnúmer. 
 
Reikningurinn verður opinn til 14. maí 2018.
Bílakjarninn
Bílakjarninn