Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Frá Bandaríkjunum á Ásbrú
Föstudagur 1. júlí 2011 kl. 16:45

Frá Bandaríkjunum á Ásbrú

Keilir fékk skemmtilega gesti til sín föstudaginn 1. júlí. Þar var á ferð Valerie Kratzer ásamt fjölskyldu sinni og tveimur börnum. Valerie kom gagngert á Ásbrú til að rifja upp gamlar minningar en hún sótti A.T. Mahan skólann á árunum 1985-1988. Að auki kenndi móðir hennar sögu við sama skóla. Valerie á þannig sterkar minningar úr því húsi sem heitir Keilir í dag. Fjölskyldan er á vikuferðalagi um Ísland og hyggst nýta það vel til að skoða landið. Fyrsta ferðin var vitaskuld á Ásbrú þar sem Valerie sýndi fjölskyldu sinni hvar "mamma" hafði búið, gengið í skóla, stundað íþróttir, verslað o.s.frv.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Aðspurð um dvölina hér á landi sagði Valreie að nýlega hefði verið "reunion" í Norfolk hjá krökkum sem höfðu verið á sama tíma á Keflavíkurflugvelli. Sagði hún það einróma álit allra að þetta hefðu verið frábærir tímar og ættu þau ekkert nema góðar minningar frá dvölinni á Íslandi. Sæist það m.a. á því að fyrrum nemendur í A.T. Mahan væru búnir að koma sér upp fésbókarsíðu um skólann. Þar væri fjöldi skráður sem vinir og sæist á spjallinu hversu ljúflega fólkið minnist veru sinnar á Íslandi.

Valerie og fjölskylda hennar fengu leiðsögn um Keili og þótti þeim mikið til koma að sjá hvernig húnsæðið væri nýtt til menntunar á ungu fólki.