Forstöðumaður Fjörheima fer á Flúðir
-Gunnhildur Gunnarsdóttir
Hvað ætlarðu að gera um Verslunarmannahelgina?
„Planið er að fara í útilegu á Flúðir með kærastanum og vinum okkar.“
Ertu vanaföst um Verslunarmannahelgina eða breytirðu reglulega til?
„Ég myndi alls ekki segja að ég væri vanaföst. Mér finnst samt sem áður lykilatriði að fara í útilegu um verslunarmannahelgina og leitast ég mikið eftir því að fara á einhvern stað þar sem boðið er upp á dagskrá yfir helgina.“
Hver er eftirminnilegasta Verslunarmannahelgin til þessa og af hverju?
„Það er klárlega fyrsta þjóðhátíðin mín. Þá var ég ný orðin 17 ára og við fórum nokkrir vinir saman með foreldrum mínum. Það að upplifa brekkusönginn og blysin í fyrsta skiptið var alveg magnað. Ég mæli með því fyrir alla sem hafa ekki farið á Þjóðhátíð að skella sér allavega á sunnudeginum til þess að upplifa þessa stund.“
Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina?
„Að fara í útilegu í góðum félagsskap.“
Hvað ertu búin að gera í sumar?
„Í byrjun sumars tók ég við sem forstöðumaður Fjörheima og 88 hússins. Ég er einnig yfirflokkstjóri í vinnuskólanum svo það er búið að vera nóg að gera í vinnunni. Ég legg áherslu á það að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi og finnst æðislegt að nýta góða veðrið í útivist, til dæmis að fara út að hlaupa, hjóla eða fara í fjallgöngu. Ég fer mikið í sund og hef gaman að því að prufa nýjar sundlaugar. Ég hef aðeins ferðast um landið og átt góða daga í höfuðborginni.“
Hvað er planið eftir sumarið?
„Planið er að sinna vinnunni af fullum krafti og halda áfram að lifa heilbrigðum lífsstíl.“