Forskólatónleikar í grunnskólum bæjarins og stór-tónleikar
Dagana 8. og 9. mars n.k. mun Forskóladeild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar ásamt Lúðrasveit C og Rokkhljómsveit halda tónleika fyrir nemendur í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar.
Þetta er sjöunda árið sem Forskóladeild og Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar standa saman að tónleikum. Umfang verkefnisins hefur vaxið ár frá ári og síðustu fimm árin hefur þessi tónleikaröð endað með stór-tónleikum ætluðum almenningi þar sem nemendur hafa spilað og sungið fyrir troðfullu húsi og algerlega slegið í gegn.
Alls verða haldnir 6 skólatónleikar á þessum tveimur dögum, en eins og undanfarin ár mun tónleikaröðinni ljúka með stór-tónleikum í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur þriðjudaginn 9. Mars. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30. Þar koma fram nemendur í 2. bekk Forskóla Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, en hann skipa allir nemendur í 2. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ, alls um 200 börn, ásamt Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, C-sveit, og Rokkhljómsveit úr skólanum. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.