Forsíðustrákurinn Halli Hjálmars
Hefur átt þrjár myndir á forsíðu Morgunblaðsins og enn fleiri inni í blaðinu.
Grindvíski áhugaljósmyndarinn Haraldur Hjálmarsson hefur undanfarin ár sent Morgunblaðinu nokkrar myndir ef þeir hefðu áhuga á að birta þær. Þrjár þeirra hafa ratað á forsíðu blaðsins, þar af tvær með nokkurra vikna millibili. Í samtali við Víkurfréttir segist Haraldur ekki hafa sent blaðinu margar myndir og óvænt ánægja hafi fylgt því að þrjár hafi verið birtar á forsíðunni. Þá hafa einnig fleiri myndir Haraldar verið birtar inni í blaðinu.
Eins og komið hefur fram í viðtali í jólablaði Víkurfrétta er Haraldur sjómaður og tekur myndavélina með sér í vinnuna. Hann nær oft að fanga augnablik, aðstæður og sjónarhorn sem landkrabbarnir sjá ekki. Þá er íslenskt landslag og náttúra sérstakt áhugaefni Haraldar og því oftast myndefni líka.
„Við brimsorfna kletta bárurnar skvetta“ var myndatextinn með þessari forsíðumynd frá 12. mars sl.
„Í gegnum öldurótið heim í jólafrí“ var myndatextinn. Ágúst GK kemur í land. Mynd frá 10. desember sl.
Þessi birtist svo í febrúar 2008.
Hér eru svo myndir Haraldar sem birtar hafa verið inni í blaðinu:
Brimketill.
Á leið á miðin.
Regnbogi yfir Grindavíkurkirkjugarði.
Himbrimi á hreiðri.
Kynblendingur æðarfugls og æðarkóngs.
Verið að merkja krumma.
Ugla.