Forsetinn opnaði Kompuna
Kompan, nýr nytjamarkaður Kölku og Suðurnesjadeildar Rauða krossins var opnaður á föstudaginn.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands opnaði markaðinn en forsetinn kom í sérstaka heimsókn þennan dag til að kynna sér starfsemi Suðurnesjadeildarinnar í tengslum við kynningarátak RKÍ á innanlandsstarfi félagsins. Allur hagnaður af sölustarfsemi Kompunnar rennur til mannúðarmála.
Ólafur Ragnar hélt síðan í heimsókn til Rauða krossins í Grindavík , þar sem hann fræddist um starfsemi deildarinnar. Lét forsetinn sig ekki muna um að fara ásamt sjálfboðaliðum Rauða krossins í verslun í Grindavík til að aðstoða þá við að afla nýrra liðsmanna.
Undirbúningur að stofnun Kompunnar hófst á vordögum 2006. Rauði krossinn leggur til húsnæðið en Kalka mun sjá um söfnun, móttöku og flutning á nytjamunum frá gámasvæðum fyrirtækisins í Helguvík, Grindavík og Vogum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði Kompuna. VF-mynd: elg