Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Forseti Íslands sá Fyrsta kossinn hjá Leikfélagi Keflavíkur
Laugardagur 26. febrúar 2022 kl. 07:16

Forseti Íslands sá Fyrsta kossinn hjá Leikfélagi Keflavíkur

Afmælissýningu Leikfélags Keflavíkur, Fyrsti kossinn, lauk um liðna helgi eftir tuttugu og fjórar sýninga sem jafnframt er sýningamet í Frumleikhúsinu.

Það er að vera komið hálft ár síðan æfingaferlið hófst og áhorfendur eru sammála um að þessi sýning hafi verið algjörlega frábær og eigi fullt erindi í atvinnuleikhúsin. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Því var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sammála en hann mætti á sýningu um liðna helgi og skemmti sér konunglega. Guðni kom baksviðs að lokinni sýningu og hrósaði sýningunni og leikurunum í hástert og sagðist hafa átt skemmtilega kvöldstund í Frumleikhúsinu. 

Þetta er reyndar í annað sinn sem forsetinn kemur á sýningu en áður kom hann með fjölskylduna á Dýrin í Hálsaskógi. 

„Auðvitað er okkur mikill heiður sýndur þegar sjálfur forsetinn gefur sér tíma til þess að kíkja á leiksýningar hjá okkur og erum stolt af því,“ sögðu leikararnir og nefndu um leið á að textahöfundurinn Þorsteinn Eggertsson og meðlimir Hljóma og Trúbrots þeir Gunnar Þórðarson og Erlingur Björnsson hefðu einnig mætt og fundist stórkostlegt að heyra og sjá þetta tímamótaverk sem hefur að geyma lög sem Rúnar heitinn Júlíusson gerði ódauðleg. 

Sýningin er eins og áður sagði sett upp í tilefni 60 ára afmæli Leikfélags Keflavíkur og skrifuð af þeim Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaugi Ómari Guðmundssyni. Sýningin er jafnframt sú 100. frá stofnun Leikfélags Keflavíkur ef rétt er talið. 

Leikfélagar vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem gáfu sér tíma til þess að kíkja á sýninguna í Frumleikhúsinu og studdu þannig við öflugt starf félagsins.