Forsala hafin á Tosca
Tosca eftir Gicomo Puccini er ein frægasta og vinsælasta ópera allra tíma. Þessi rómantíska ópera fjallar um ástir og afbrýði, sem endar með ósköpum. Óperan Tosca hefur að geyma stórkostlega tónlist og margar af fallegustu aríum óperubókmenntanna svo sem: Recondita armonia, Visi d’arte, Te Deum og E lucevan le stelle.. eða Turnaríuna.
Í aðalhlutverkum eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir sem Tosca, Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem Cavaradossi, Jóhann Smári Sævarsson sem Scarpia, Bergþór Pálsson sem Angelotti, Bragi Jónsson sem Sacristan og Sciaronne, Magnús Guðmundsson sem Spoletta, Rósalind Gísladóttir og Kristján Þorgils Guðjónsson.
I þáttur óperunnar verður fluttur í Keflavíkurkirkju, II þáttur í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju og sá III í garðinum þar á milli. Áhorfendur flytja sig á milli ríma milli þátta og taka þannig virkan þátt í sýningunni.
Til að byrja með verða aðeins tvær sýningar! Frumsýning verður 12. ágúst, önnur sýning 14. ágúst.
Forsala er þegar hafinn á midi.is. Óperan er flutt á ítölsku með píanó, orgel og slagverks undirleik. Að sýningunni standa: Óperufélagið Norðuróp í samvinnu við tónlistarfélag Reykjanesbæjar, sönghópinn Orfeus og kór Keflavíkurkirkju.
Tónlistarstjóri er Antonia Hevesi og leikstjóri er Jóhann Smári Sævarsson.
Myndir: Bylgja Dís Gunnarsdóttir að ofan og Jóhann Smári við flygilinn