HSS
HSS

Mannlíf

Fór ótæpilega í nammipokann og var aðvaraður af dómara
Guðjón þjálfari kampakátur með nammipokann góða. VF-mynd: Hilmar Bragi
Föstudagur 6. júlí 2012 kl. 16:38

Fór ótæpilega í nammipokann og var aðvaraður af dómara

Stemmningin á varamannabekk Grindavíkur var með besta móti í gærkvöldi þegar heimamenn tóku á móti Valsmönnum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindavíkur, er þekktur fyrir sælgætispokann sem hann mætir ávallt með á leiki.

Guðjón opnar pokann og bíður upp á bita þegar hans menn skora mark. Í gær náðu Grindvíkingar forystunni snemma leiks og mikil stemmning var í liðinu sem ætlaði sér sigur í leiknum. Það var því farið ótæpilega í pokann góða á meðan leik stóð. Sagði Guðjón eftir leikinn að einn af aðstoðarmönnum hans á bekknum hafi farið full oft í pokann, fengið sykursjokk og orðið æstur þannig að dómari leiksins varð að koma og aðvara hann.

Á meðfylgjandi myndum má sjá gleðina á bekknum í gærkvöldi og þegar leikmönnum og öðrum var boðið upp á nammi eftir að Grindavík hafði aukið forystuna í 2:0. Úrslit leiksins í gær urðu 2:0 sigur heimamanna og fyrsti sigur Grindavíkur í Pepsi-deildinni orðinn að veruleika.

VF-myndir: Hilmar Bragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það eru margir flottir molar í pokanum hjá Guðjóni Þórðarsyni.