Fólk virðist vera að gleyma sér
Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman leggur stund á stærðfræðinám í Háskóla Íslands. Hún hefur stundað fimleikaæfingar í gegnum fjarfundarbúnað á Zoom og hefur áhyggjur af fjölskyldu sinni sem býr í Banda-ríkjunum.
– Hvernig ert þú að upplifa ástandið í kringum COVID-19?
Mér finnst ástandið í kringum þetta mjög skrítið og ég held að ég sé ekki að átta mig almennilega á því hvað þetta er stórt.
– Hefurðu áhyggjur?
Auðvitað hefur maður áhyggjur á tímum sem þessum. Áhyggjurnar beinast aðallega að fjölskyldumeðlimum og vinum sem eru í áhættuhópi og einnig að fjölskyldunni minni sem býr í Bandaríkjunum. Hugur minn er einnig hjá þeim sem hafa misst einhvern nákominn í þessari baráttu.
– Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf?
Já, ég hef gert miklar breytingar á daglegu lífi. Ég er vön því að vera mjög upptekin flesta daga, bæði í námi og á fimleikaæfingum, en núna fara bæði námið og æfingarnar fram heima hjá mér.
– Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu eða nám?
Já, allt mitt nám fer fram í fjarkennslu þannig að ég horfi á alla fyrirlestrana mína heima og ég hef ekki mætt í skólann síðan samkomu-bannið hófst.
– Hefur þú hitt vini eða ættingja í gegnum fjarfundarbúnað? Ef svo er, hvernig hittingar?
Já, ég er bæði búin að hitta liðsfélagana mína og vini mína í gegnum fjarfundarbúnað. Við í Gerplu erum líka duglegar að taka fimleikaæfingar saman á Zoom. Það er mjög skrítið en það virkar.
– Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega?
Nokkrum dögum áður en sam-komu-bannið hófst.
– Hvað varð til þess?
Það var svo sem ekki neitt sérstakt en mig grunar að það hafi verið vegna þess að ég sá fréttir í fjölmiðlum um að faraldurinn væri búinn að breiðast út og ætti eftir að breiðast ennþá meira út. Þá áttaði ég mig almennilega á því að þetta væri miklu stærra en ég hélt.
– Hvernig ert þú að fara varlega?
Ég passa vel upp á handþvottinn og reyni að vera sem minnst í fjölmenni.
– Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum?
Ótrúlega vel, hrós til þeirra.
– Finnst þér fólk vera taka tilmælum yfirvalda nógu alvarlega?
Já, almennt. Ég finn það samt svolítið í samfélaginu núna þegar veiran er í rénun að fólk virðist aðeins vera að gleyma sér. Þess vegna tel ég mikilvægt að muna að þetta er ekki búið og veiran getur blossað upp aftur ef við pössum okkur ekki nógu vel.
– Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum?
Mér finnst mikilvægast að hugsa vel um sjálfan sig og reyna að skapa góðar stundir með sínum nánustu.
Hvernig finnst þér sveitarfélagið standa sig í þessum málum?
Almennt mjög vel. Mér finnst sumar búðir hér á svæðinu ekki vera að taka ástandið nógu alvarlega. Á sumum stöðum er ekki talið inn í verslanirnar og það eru engar merkingar til þess að hjálpa fólki að fylgja tveggja metra reglunni.
– Er samkomubannið að hafa áhrif á þig?
Að sjálfsögðu, ég má hvorki mæta í skólann né á fimleikaæfingar og það hefur mikil áhrif á mig en það er mikilvægt að vera jákvæður og muna að þetta er einungis tímabil sem mun taka enda – hvenær sem það verður.
– Hvernig hagar þú innkaupum í dag?
Beggja blands. Við höfum bæði verið að versla á netinu og úti í búð.
– Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi?
Ég geri ráð fyrir að þetta muni vara allavega fram á haust. Ég vona samt innilega að þetta muni vara skemur en ég held að það sé betra að horfa raunhæfum augum á ástandið í staðinn fyrir að gera sér vonir um annað.
– Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innanlands eða utan?
Bæði. Ég stefni á að ferðast innanlands í sumar, svo ætluðum við fjölskyldan að fara til Bandaríkjanna í haust en við vitum ekki hvort við komumst. Ástandið er enn mjög slæmt í Bandaríkjunum og svo eru miklar takmarkanir á flugumferð.
– Er einhver sérstakur viðburður eða dagur sem þú óttast að verði aflýst?
Já, Evrópumótið í hópfimleikum sem á að vera í október. Ég missti af síðasta EM vegna meiðsla og er búin að bíða spennt eftir að geta keppt á öðru Evrópumóti síðan þá en það eru einfaldlega skemmtilegustu mótin. Við höfum ekkert heyrt enn svo ég held í vonina um að það verði á tilsettum tíma. Það lítur einnig allt út fyrir að Þjóðhátíð verði frestað sem er mjög leiðinlegt.