HSS
HSS

Mannlíf

„Fólk hringdi og þakkaði mér fyrir“
Föstudagur 13. desember 2013 kl. 09:33

„Fólk hringdi og þakkaði mér fyrir“

Lið Reyknesinga mætir Akurnesingum í Útsvari í kvöld.

„Við lögðum tvöfaldan sigurvegara og það fór illa hjá þeim. Fólk hefur hringt utan af landi til að þakka mér fyrir,“ segir Baldur Guðmundsson, útibússtjóri Sjóvá í Reykjanesbæ og liðsstjóri Reyknesinga í spurninga- og skemmtiþættinum Útsvari á RÚV. Liðið sló afar sterkt lið Garðbæinga úr keppninni fyrir skömmu með 105 stigum gegn 39 og mætir Akurnesingum í kvöld.

Gálgahúmorinn vakti mikla athygli
Spurður um liðsmenn mótherjanna segir Baldur Vilhjálm Bjarnason vera búinn að stýra aðgerðum. Það hafi komið fram í þættinum að liðsmenn hans hafi þurft til dæmis að kynna sér ákveðnar heimsálfur og hitt og þetta. „Garðbæingar hafa sýnt viðbrögð við sigrinum, t.a.m. búa tengdaforeldrar mínir þar. Garðabær er svona einskis manns land,“ segir Baldur með stríðnistón. Og Baldur er ekki bara stríðinn. Hann þykir ansi hnyttinn og fljótur að hugsa. Undir lok viðureignarinnar á móti Garðbæingum sagði hann: „Ég vil nú ekki vera með neinn gálgahúmor en við hraunuðum yfir Garðabæ.“ Þessi ummæli Baldurs hafa vakið mikla athygli og hann segist aldrei hafa fengið eins mikil viðbrögð við neinu áður. „Ingrid og Karen hlógu en Villa fannst það ekkert fyndið, enda mikill keppnismaður.“ Baldur segist reyndar sjálfur vera mikill keppnismaður en kunna að taka ósigri. „Ef maður færi í gegnum lífið með alla ósigra á bakinu sem maður hefur þolað í þessum leikjum, þá svæfi maður nú lítið. Það er eiginlega verst ef maður þyrði ekki að taka þátt,“ segir hann.

Ísfirðingar buðu í hann
Baldri finnst skemmtilegt hversu mikið er í raun á „harða diskinum“ sem poppar óvænt upp þegar á reynir í spurningakeppnum. Hann muni allt í einu eitthvað algjörlega óvart sem hann man ekki eftir að hafa munað. Hann segist ekki lengur búa sig undir viðureignir í Útsvarinu þó hann hafi áður gert það. „Það var auðveldara að lesa spurningahöfundinn sem var áður. Núna veit maður ekkert; hann [Stefán Pálsson] veit svo margt um margt og reynir að vera með fróðleik sem honum finnst að ætti að vera alkunna en svo veit það enginn,“ segir Baldur en bætir við að reyndar hafi hann hitt vel á vitneskju liðs Reyknesinga í síðasta þætti. En svo hafi lið eins og Ísafjörður farið heim með aðeins tíu stig. „Ég er búinn að hitta tvo Ísfirðinga sem eru búnir að bjóða í mig. Ég á reyndar mjög litlar rætur að rekja til Vestfjarða svo að það gengur ekki upp,“ segir Baldur hlæjandi.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Á að vita tónlistarspurningarnar
Hann segir keppnina mjög skemmtilega þegar spurningar höfundar hitti vel á sig og að keppnin taki ekki of mikinn tíma frá honum. „Ég sanka að mér innantómum fróðleik jafnóðum. Síðast hittist liðið í sjónvarpssal, ekkert fyrir það. Við prófuðum einhvern tímann að gera merkjakerfi fyrir leikinn en svo mikill tími fór í að stúdera merkin að maður gleymdi að láta flæða. Komum aldrei eins illa út og þá,“ segir Baldur. Liðið sem sigraði þau í fyrra hafi þó unnið þau á merkjakerfi svo að það sé misjafnt hversu vel það gangi upp. Hann segist yfirleitt vera pollrólegur meðan á keppni stendur, enda sé hann vanur svona keppnum og einnig að koma fram við ýmis tilefni, verið með útvarpsþátt og oft verið á sviði. Þessi keppni sé fín áskorun. „Eina sem stressar mig er þetta píanólag því það finnst öllum að ég eigi að kunna það. Hef klikkað illilega á þeim lið en oftast hef ég verið með það. Ég geri þær kröfur til mín að kunna tónlistarspurningarnar,“ segir Baldur með áherslu og bætir svo hlæjandi við: „Eitt sinn var ég þó búinn að undirbúa mig fyrir ákveðinn spurningaflokk sem kom svo í allt öðrum þætti.“

Semur erfiðar spurningar
„Ég var alltaf bestur í bleiku spurningunum í Trivial Pursuit, góður í þeim brúnu en hef aukið þekkingu mína í landafræði [bláu spurningunum] eftir því sem árin hafa liðið. Ég er langslappastur í raungreinunum, get ekki fest hugann við þær,“ segir Baldur sem stundaði nám í viðskiptafræði á árum áður. Hann segir að þótt það hafi gengið vel hafi hann oft haldið til á bókasafninu við að skoða eitthvað allt annað. „Ég hef alltaf sökkt mér í ýmislegt. Þannig var það á mínu uppeldisheimili. Mikið var til af efni um tónlist, bæði bækur og annað.“ Hann bætir við að það haldi áfram yfir í næstu kynslóð því strákarnir hans séu einnig miklir spurninganerðir. Hann tekur vinsæla leikinn Quiz Up sem dæmi um áhugasvið þeirra. „Svo datt ég inn í Pub Quiz og hef nokkrum sinnum verið fenginn til að semja spurningar. Reyndar eru spurningarnar alltaf svo erfiðar hjá mér. Ég legg af stað með góðan vilja og finnst efnið vera alkunna en svo er það bara alls ekki. Það er líka dálítið síðan ég hef verið beðinn um það. Ég hef aftur á móti oft verið í sigurliðinu í Pub Quiz,“ segir Baldur og glottir.  

Mun hætta eftir þetta tímabil
Spurningakeppnir hafa lengi verið vinsælt sjónvarpsefni, bæði hérlendis og í útlöndum. Útsvarið hefur verið með einna mest áhorf í íslensku sjónvarpi. Baldur segir að svona keppnir einfaldlega virki. Alltaf sé hægt að vera heima og fagna því að vita eitthvað. Þetta haustið er fimmta tímabilið sem Baldur tekur þátt og mun næsta viðureign Reyknesinga verða á morgun, 13. desember. „Þá keppum við við lið sem við höfum tvisvar unnið áður en það er ekki ávísun á einn eða neinn árangur. Svo er þetta orðið ágætt, ég vil hætta eftir þetta tímabil. Það er örugglega fullt af fólki sem langar að vera í liðinu,“ segir Baldur að lokum.
 

VF/Olga Björt