Fólk hefur lifað svo hratt og það þarf allt að gerast í gær
Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir er bílstjóri hjá Ferðaþjónustu Reykjaness. Hún var heima um páskana eins og flestir en notaði þá til smá framkvæmda.
– Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn?
Freyju Draumaegg og málshátturinn var: „Maður er manns gaman.“
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?
Ég nota símann og tölvuna gegnum skilaboðin á fésbókinni.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?
Mamma og pabbi, þau eru bara alltaf til staðar.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel taka margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19?
Mér finnst það bara allt í góðu, það er bara gott að fólk bremsi sig aðeins af og fari að njóta augnabliksins, huga að sínu nærumhverfi og átti sig á því hvað það getur haft það gott með sjálfum sér og sínum nánustu án allra stórra mannfagnaða.
– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?
Að hraðinn skipti ekki eins miklu máli og við héldum, fólk hefur lifað svo hratt og það þarf allt að gerast í gær. Ég held að fólk eigi eftir að átta sig á því hvað lífið hefur upp á að bjóða og hvað fjölskyldan skiptir miklu máli, tengsl manna munu breytast mikið og við verðum meðvitaðri um hvert annað.
– Ertu liðtæk í eldhúsinu?
Já, já, eða ég reyni það að ég held.
– Hvað finnst þér virkilega gott að borða?
Grillmat.
– Hvað var í páskamatinn?
Úrvals hryggur.
– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?
Mér finnst ekkert skemmtilegt að elda.
– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?
Skinkuhorn og skúffukaka.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn?
Eitthvað svakalega gott á grillið.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Veðrið hefur lagast helling.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Æ, allar þessar vondu fréttir, dauðsföll vegna COVID-19 og af mannavöldum, hvarf á ungri stúlku, þetta fer ekki vel í sálina. Mínar hugsanir og bænir eru hjá aðstandendum þeirra.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni?
– Á að ferðast eitthvað í sumar?
Já, ætla að ferðast innanlands, taka hringinn í kringum landið. Ætla að njóta þess í botn með fjölskyldunni.