Sjómannakveðjur 1
Sjómannakveðjur 1

Mannlíf

Flugukofinn opnar á Hafnargötu
Júlli við afgreiðslu í Flugukofanum.
Mánudagur 16. desember 2013 kl. 09:21

Flugukofinn opnar á Hafnargötu

Flugukofinn hefur verið starfræktur í Reykjanesbæ síðan árið 2009. Í upphafi var hann hugsaður sem viðbót við helsta áhugamál Júlíusar Gunnlaugssonar, sem hafði stundað fluguhnýtingar af miklum móð en saknaði þess sárlega að geta verslað það sem til þurfti í sinni heimabyggð. Í byrjun var Flugukofinn aðeins nettur rekstur í litlu hliðarhúsi við Sólvallagötu sem sérhæfði sig í efnum og áhöldum til fluguhnýtinga. En fljótlega fór að bera á eftirspurn eftir fleiri vörum sem sneru að veiðiskap. Fyrst bættust við vörur tengdar fluguveiði, og svo almennt allri stanga- og sjóstangaveiði. Nú undir það síðasta hefur skotveiðin verið að bætast við. Það var því löngu ljóst að húsnæðið við Sólvallagötu var sprungið enda hefur umfang Flugukofans aukist jafnt og þétt. Nú hefur Flugukofinn opnað nýja, stærri og glæsilegri verslun við Hafnargötu 21, í húsnæði sem getur sinnt allri þjónustu við veiðimenn. Þar tekur Júlli í Flugukofanum vel á móti öllum þeim sem vantar eitthvað veiðitengt.

Síðasta sumar gegndi Júlíus starfi yfirleiðsögumanns í Ytri-Rangá, en auk þess að vera með veiðibúð hefur hann verið leiðsögumaður stangaveiðimanna undanfarin ár. Því má segja að ekki sé komið að tómum kofanum þegar leitað er til Júlla eftir ráðleggingum um val á veiðibúnaði.

Laugardaginn 2. desember sl. var formleg opnun Flugukofans á nýjum stað. Eins og meðfylgjandi myndir sýna mættu margir góðir gestir á Hafnargötuna til að berja nýju búðina augum og kynna sér allt það nýjasta sem er í boði í veiðiheiminum í dag. Engilbert Jensen sýndi einstaka takta og töfraði fram einstakar veiðiflugur fyrir augum gesta og gangand, en fáir eru jafn færir og hann þegar kemur að fluguhnýtingum.

Þó að á þessum árstíma sé öll veiði í lágmarki er eftirvænting veiðimanna mikil og veiðibúðir gegna því mikilvæga hlutverki að stytta mönnum stundir við biðina eftir næstu veiðitíð, þar hittast þeir til að skiptast á veiðisögum og ráðleggingum. Í Flugukofanum verða veiðisögurnar til.



Engilbert Jensen sýnir gestum listir sínar.


Hjálmar Árnason brosti sínu breiðasta í opnuninni.


Skipst á sögum.


Gamlir munir. Stingur skemmtilega í stúf við nýjustu græjurnar í búðinni.


Texti: Jóhann Páll Kristbjörnsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn