Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Flugstöð Leifs Eiríkssonar 25 ára - fagnað með stæl
Laugardagur 14. apríl 2012 kl. 16:24

Flugstöð Leifs Eiríkssonar 25 ára - fagnað með stæl

Flugstöð Leifs Eiríkssonar er 25 ára í dag og var því fagnað sérstaklega í gær með afmælishófi í gamla yfirmannaklúbbnum á Keflavíkurflugvelli, nú nefnt Ásbrú.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála og Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Isavia, rekstraraðila flugstöðvarinnar fluttu stutta tölu og fögnuðu áfanganum. Fleiri góðir gestir voru í hófinu, m.a. nokkrir aðilar sem komu að byggingu stöðvarinnar sem opnuð var formlega 14. apríl 1987 að viðstöddum um þrjú þúsund gestum. Þáverandi forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sagði í lok ræðu sinnar „Hver vegur að heiman er vegurinn heim“.

Í ræðu Þórólfs kom einnig fram að flugstöðin hefur fengið nokkrar viðurkenningar á undanförnum árum fyrir góða frammistöðu og þjónustu og hefur flugvöllurinn í tvígang verið valin sá besti í sínum flokki í heiminum á undanförnum þremur árum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í afmælishófinu í gær. Að því loknu var haldinn dansleikur fyrir starfsmenn stöðvarinnar til að fagna aldarafmæli og frábærum árangri. Þemað var gylltur klæðnaður í anda Austin Powers. Um 400-500 manns mættu um kvöldið og skemmtu sér hið besta. Fleiri myndir frá þeim viðburði verður hér á vf.is á mánudag.

VF-myndir/Páll Ketilsson.

Á efstu myndinni má sjá nokkra af starfsmönnum Keflavíkurflugvallar í góðum gír í tilefni afmælisins. Þórólfur Árnason, flutti ræðu í tilefni aldarfjórðungsafmælisins.

F.v. Helgi Ágústsson, Sverrir Haukur Gunnlaugsson, form. bygginganefndar stöðvarinnar, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Ögmundur Jónasson, ráðherra og Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Keflavíkurflugvallar.

Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Keflavíkurflugvallar og Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.

Núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn Keflavíkurflugvallar, f.v. Þórólfur Árnsson, form. núverandi stjórnar, Gísli Guðmundsson, Ellert Eiríksson og Helgi Ágústsson.

Sigríður Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum og Jónína Sanders, fyrrv. bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.

Guðrún Hákonardóttir, Kristján Pálsson og Sóley Halla kona hans.

Þeir starfa á sitt hvorum vettvangi þessir kappar en eiga eitt sameiginlegt. Björgólfur Jóhannsson er stjórnarformaður Icelandair keðjunnar og Siggi Hlö er diskóstjóri Íslands. Björgólfur var á leið heim eftir eftir afmælishóf en kvöldið var rétt að byrja hjá diskókónginum. Sameiginlegt áhugamál þeirra er golf.