Flugeldasýning við Grænás í kvöld
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Suðurnes hófst á slaginu 10 í morgun og að sögn Brynjars Ásmundssonar, flugeldastjóra, hefur salan farið vel af stað. Það er viss hefð hjá Björgunarsveitinni Suðurnes að efna til flugeldasýningar á upphafsdegi flugeldasölunnar og þannig verður það áfram.
Í kvöld kl. 20:30 verður flugeldasýning í Grænásbrekku en sýningin er jafnan tilþrifamikil og skemmtileg. Fjölskylduskemmtun hefst rétt á undan flugeldasýningunni eða kl. 20:00 í húsi Björgunarsveitarinnar Suðurnes að Holtsgötu þar sem jólasveinninn Skyrgámur mun heilsa upp á krakkana. Þá verður einnig heitt kakó og kex í boði fyrir viðstadda í boði kvennasveitarinnar Dagbjargar.
Í tilefni dagsins verður 10% afsláttur af öllum flugeldum hjá Björgunarsveitinni Suðurnes á sölustöðum sveitarinnar.
VF-myndir/ JBÓ
Mynd 1: Brynjar Ásmundsson flugeldastjóri með kökuna Njál
Mynd 2: Vaskir flugeldasölumenn búnir og boðnir við að aðstoða viðskiptavini í flugeldakaupum sínum.