Flugdagur Sléttunnar á morgun
Fisfélagið Sléttan mun standa fyrir allsherjar flugdegi á svæði sínu á Njarðvíkurheiði á morgun. Þar munu koma saman fjöldinn allur af fisum víðsvegar að en Sléttan telur nú um 15 félaga.
Þar verða þó einnig fleiri flygildi en fis því allir eru velkomnir og mögulegt er að félagar úr Flugmódelfélagi Suðurnesja verði á staðnum og jafnvel að þyrla komi við. Dagskráin hefst kl. 14, en þar verður keppt í pokakasti, lendingarkeppni, flugtakskeppni og fleiru, en ráðgert að að skipulagðri dagskrá ljúki um kl. 19. Eins og fyrr sagði eru allir velkomnir en vegvísar á flugsvæðið verða við afleggjarann að Seltjörn á Grindavíkurvegi.
Sjá nánar á heimasíðu félagsins, www.slettan.com.