Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Flóðgáttir opnuðust eftir Covid
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 3. september 2022 kl. 06:06

Flóðgáttir opnuðust eftir Covid

Arnór Vilbergsson, organisti Keflavíkurkirkju fór í frábært söngferðalag til Ítalíu með Kór Keflavíkurkirkju en uppáhaldsstaður hans og konu hans er Snæfellsnesið. Hann ætlar að sækja marga viðburði á Ljósanótt en organistinn verður við píanóið á nokkrum tónleikum.

Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án Covid takmarkana?

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Í fyrsta sumarfríinnu eftir Covid opnuðust flóðgáttir hjá mér og spússu minni. Við ferðuðumst mikið erlendis og hérlendis. Heimsóttum Ítalíu, Frakkland, Hvammstanga og Borgarnes svo eitthvað sé nefnt.“

Hvað stóð upp úr?

„Það sem stóðu uppúr var án efa Ítalía. Vorum í Bolzano, við alpana, á norðanverðri Ítalíu. Kór Keflavíkurkirkju var á söngferðalagi sem var hreint út sagt frábært.

Það sem kom helst á óvart varðandi sumarið var hversu gott verður var raunar hérna á suðvesturhorninu. Ég skildi aldrei þennan bölmóð hvað varðar veðrið.“

Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands?

„Uppáhaldasstaður okkar hjóna er Snæfellsnesið. Við vorum tvær nætur á Arnarstapa í sumar í góðra vina hópi þar sem veðrið lék við okkur þrátt fyrir vá-spár.“

Hvað ætlar þú að gera í vetur?

„Hvað varðar veturinn er ég fullur tilhlökkunnar. Loksins venjuleg tíð, með kórsöng, messum og öllum þeim dásemdum.“

Hvernig finnst þér Ljósanótt?

„Ljósanótt er skemmtilegur litur á tilveruna okkar hérna suður með sjó. Besta við hana er án efa, að fjölskyldur, þar á meðal mín, sameinast öll þessa helgina.“

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? 

„Kóngatónleikana ætla ég að vera viðstaddur. Þeir verða í Keflavíkurkirkju á fimmtudagskvöldinu kl. 20. Einnig langar mig til að sækja nýjustu viðbót ljósanæturhelgarinnar „Í holtunum heima“. Kjötsúpan á föstudeginum verður tekin.  Laugardagurinn hefur iðulega verið þannig að ég hef reynt að ná kórtónleikunum um miðjan dag í Duus húsum. Auðvitað verður farið niður í bæ á laugardagskvöldinu og notið þeirra skemmtiatriða. Á sunnudaginum fer ég vissulega á Bítlamessuna í Keflavíkurkirkju.“

Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?

„Ég á margar góðar minningar frá ljósanótt. „Með blik í auga“ hefur skipað stóran sess á hjá mér síðastliðnar Ljósanætur. Húrruðum í þann viðburð 10 ár í röð. „Ljós um nótt“ var söngleikur sem Keflavíkurkirkja setti á svið og þar fékk ég að leika fuglinn Konna. Því gleymi ég aldrei. Einnig stendur mikið uppúr hjá mér þegar við í kirkjunni vorum með „Queen messuna“ á laugardagskvöldinu.  Sannarlega stórkostlegt.“