Fleiri Keflvíkingar lokast inni í lyftu á Spáni
Það er ekki einleikið hvað lyftur lokast á Keflvíkinga þessa dagana. Þóra Eyjólfsdóttir, fjármálastjóri hjá Motus, Keflvíkingur í húð og hár, er að ganga Jakobsveginn á Spáni með ferðaskrifstofunni Mundo þessa dagana.
Í fyrradag lenti hún í því að lokast inni í lyftu. Sem betur fer var ljós í lyftunni því eitthvað var viðgerðarmaður lengi á leiðinni. Heyrðist ekki annað en hlátrasköll í Þóru og Önnu Siggu vinkonu hennar þar sem þær biðu eftir björgun úr lyftunni á áttundu hæð.
Áfallateymi, læknir og tveir geðhjúkrunarfræðingar biðu fyrir utan lyftuna en sáu að þau höfðu ekkert að gera. Þegar lyftan opnaðist stigu þær vinkonur út - nýnaglalakkaðar og skælbrosandi eins og meðfylgjandi mynd sýnir.