Mannlíf

Flakkari sem lætur draumana rætast
Sunnudagur 25. júní 2017 kl. 06:00

Flakkari sem lætur draumana rætast

- Keflvíkingingurinn Eva Þóra starfar hjá Uppbyggingarsjóði EES í Belgíu

Keflvíkingurinn Eva Þóra Karlsdóttir hefur víða komið við á stuttum ferli. Rétt tæplega þrítug hefur hún búið í sex löndum þar sem hún hefur verið að afla sér þekkingar og vinna í spennandi störfum. Eva er nú búsett í Brussel þar sem hún starfar sem samskiptafulltrúi hjá Uppbyggingarsjóði EES. Ólíkir menningarheimar hafa alltaf heillað Evu svo það lá beinast við að nema stjórnmálafræði með alþjóðafókus.

Flutti til Ítalíu eftir grunnskóla
Sem unglingur var Eva óákveðin þegar kom að því að velja sér námsleið. Hún fór því heldur óhefðbundna leið áður en hún fór í framhaldsskóla á Íslandi. „Flakkið byrjaði nokkuð snemma. Ég hafði ekki hugmynd um hvaða framhaldsskóla ég vildi fara í svo að í staðinn fór ég út í skiptinám til Ítalíu strax eftir að ég kláraði grunnskólann. Ég bjó í strandbæ á norð-austur strönd Ítalíu í tæplega eitt ár og gekk í ítalskan framhaldsskóla á meðan ég reyndi að krafsa mig áfram í tungumálinu. Það má segja að þarna hafi kviknað á útlandabakteríunni og að það hafi ekki slokknað á henni síðan,“ segir Eva.

Þegar heim var komið á ný fór Eva í FS þar sem hún fór á tungumálabraut. Þaðan lá leiðin svo í stjórnmálafræði og í opinbera stjórnsýslu enda hafði áhugi á stjórnmálum og alþjóðamálum kviknað á ferðum Evu. „Ólíkir menningarheimar hafa alltaf heillað mig svo að stjórnmálafræði með alþjóðafókus lá nokkuð beint við. Það er eitthvað svo áhugavert við það hvernig fólk þarf að koma saman úr ólíkum áttum til þess að finna lausn á sameiginlegum vandamálum, sérstaklega þegar það er langt á milli skoðana og heimsmynda.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fjórir nemendur í tíma í Texas
Þegar Eva var við nám í Háskóla Íslands fór hugurinn að leita aftur út fyrir landsteinana. Í þetta skiptið lá leiðin til Texas í eitt ár þar sem hún fór í skiptinám. „Þar bjó ég í háskólabæ rétt fyrir utan Austin og stundaði nám við lítinn háskóla með rétt rúmlega eitt þúsund nemendum. Þetta var mjög skemmtilegur tími enda er Austin svæðið alveg einstakt, þarna ríkir mikið frjálslyndi sem mætir svo hinni týpísku kúrekamenningu í magnaðri blöndu. Þarna kynntist ég líka allt öðruvísi námi en því sem ég var vön heima í HÍ. Til dæmis voru stærstu áfangarnir mínir með 20 nemendum en í þeim minnstu vorum við bara fjögur. Það var því mikil áhersla lögð á krítískar samræður í stað fyrirlestra og tengslin milli kennaranna og nemendanna voru mjög sterk.“

Eftir heimakomu og gráðu í stjórnmálafræði fluttist Eva til Gautaborgar þar sem hún stundaði mastersnám í alþjóðastjórnmálum í tvö ár. Á meðan á náminu stóð því stóð tók Eva stutt starfsnám í Vínarborg í nokkra mánuði og eftir útskrift byrjaði hún svo að vinna hjá Eystrasaltsráðinu í Stokkhólmi. Eftir eitt ár þar kom hún auga á starfsnámstækifæri hjá Uppbyggingarsjóði EES í Brussel og ákvað að sækja um. Hún komst að og var svo ráðin þar í fullt starf eftir að starfsnáminu lauk.

Vonlaust að láta sér leiðast í Brussel
Eva starfar nú sem samskiptafulltrúi hjá Uppbyggingarsjóði EES í Brussel. Sjóðurinn var stofnaður í gegnum EES samninginn og er fjármagnaður af Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Sjóðurinn styrkir verkefni í 16 löndum í Evrópu með því markmiði að auka uppbyggingu og styrkja bæði tengsl og samvinnu á milli sjóðsins og styrkþegalandanna. Verkefnin sem fá styrk eru á margvíslegum sviðum eins og t.d. innan orku- og umhverfismála, rannsókna og menntamála, jafnréttismála og menningar. Mörg af þessum verkefnum eru framkvæmd í samvinnu við stofnanir og samtök hér heima. Sem dæmi má nefna Orkustofnun sem tekur þátt í jarðvarmaverkefnum, meðal annars í Portúgal og Rúmeníu. Íslenskir háskólar taka þátt í rannsóknar- og menntaverkefnum, og Barnaverndarstofa er að aðstoða við innleiðingu Barnahúss í Litháen. Starf Evu snýst mest um það að koma árangrinum sem næst í gegnum þessi verkefni á framfæri.

„Mér finnst Brussel alveg yndisleg, hún er með svo mikinn og sérstakan karakter. Matar- og menningarlífið er mjög sterkt svo það er vonlaust að láta sér leiðast. Brussel er t.d. algjör draumur fyrir tónlistarnörda, það er svo ótrúlegur fjöldi af tónleikastöðum í borginni að það er ekkert mál að finna eitthvað eyrnakonfekt í hverri viku. Hins vegar eiga Belgar það til að flækja hlutina aðeins svo það ríkir stundum ákveðið kaos og hlutirnir virka ekki alveg eins og þeir ættu að gera. Til dæmis er ótrúlegt reglugerðarbákn um það eitt hvenær maður má fara út með ruslið. Allt þetta gefur borginni einhvern súrrealískan sjarma sem ég er alveg kolfallin fyrir.“

Keypti þvottavél á frönsku
Eva er mikil tungumálamanneskja og stefnir nú að því að bæta við sig frönsku og hollensku á næstunni.
„Ég hef mjög gaman af tungumálum og þeim tækifærum sem að þau opna fyrir manni. Ég er enn með ágæt tök á ítölskunni. Sænskan er enn til staðar en þar sem ég vinn mestmegins með Norðmönnum þá er hún orðin nokkuð blönduð, ég gæti sagt að ég tali einhvers konar skandinavísku. Franskan er enn í vinnslu og þar eru það litlu sigrarnir sem skipta máli. Til dæmis náði ég að kaupa mér þvottavél á frönsku um daginn, því var vel fagnað.“

Á öllum þessum ferðalögum og eftir búsetu erlendis segist Eva hafa öðlast aukið sjálfstæði enda þurft að standa á eigin fótum frá unga aldri. „Mamma og pabbi hafa mikið gert grín af því að þegar ég fór til Ítalíu 15 ára gömul þá var þeim það mjög augljóst að þetta væri bara fyrsta stopp af mörgum. Ég mátti ekkert vera að því að vinka bless, ég romsaði bara upp stigann í Leifsstöð án þess að líta til baka.“

„En þetta með sjálfstæðið kemur til af því að maður skilur stuðningsnetið að miklu leyti eftir heima. Maður gerir sér því mjög fljótt grein fyrir því að maður þarf að bjarga sér sjálfur til að hlutirnir gangi upp. Svo með því að láta reyna á hlutina þá kemst maður að því að þrátt fyrir stress af og til þá reddast allt saman nú bara yfirleitt. Allt þetta hefur gert mig mun óhræddari við það að kýla á hlutina og láta draumana rætast.“