Fjörutíu og eitthvað
Lífsklukkuna má nánast stilla að nýju upp úr fertugu. Það fer eitthvað að gefa sig. Flestir verða varir við að sjónin fer að daprast og enn annað að hanga eða slappast. Ég kvartaði nokkrum sinnum til áskriftardeildar Morgunblaðsins um að letrið væri að minnka og greinarnar að versna. Mogginn er reyndar orðinn hundgamall og ætti að vera löngu farinn að lýjast en ég var verulega ósáttur að geta ekki einu sinni orðið lesið íþróttafréttirnar. Frúin benti mér mæðuleg á svip að það fengjust ódýr gleraugu í apótekinu, í öllum styrkleikum og þættu bara nokkuð móðins. Og hættu svo að kvarta og kveina!
Það var nokkuð til í þessu hjá henni og ég varð að bíta í það súra. Skokkaði niður á Tjarnargötu og keypti mér garma á nefið. Þúsund kall var ekki mikill peningur þá fyrir gjörð með gleri. Faldi mig heima til að byrja með, stalst öðru hvoru með þau í vinnuna og þegar egóið brast, leitaði ég loks til augnlæknis. Dró það í nokkur ár að viðurkenna að ég þurfti alvöru gleraugu. Ekki um annað að ræða en að heilsa upp á Kjartan og hans fólk. Ekkert nema þægilegheit og þjónusta. Mætti loks galvaskur í mátun á Ljósanótt 2008 og úrvalið var framar vonum. Töluvert betra en á Tjarnargötunni og með góðum afslætti að auki.
Fyrstu gleraugun voru eins og að eignast fjórða barnið, sem reyndar aldrei kom. Taumlaus gleði og táraflóð. Númeraplötur á bílum vinanna urðu skýrari og ég gat loks farið að vinka þeim aftur. Áttaði mig á því að það er félagslegt atriði að sjá almennilega. Kjartan benti mér á að skrifstofukall eins og ég þyrfti auðvitað tvískipt gleraugu, rýnandi á skjáinn allan liðlangan daginn. Sé ekki eftir þeim ráðleggingum. Hóf nýtt líf en var skíthræddur um að geta ekki notið þess að fara í golf og missa allt fjarlægðarskyn.
Það lá ekki á svari á þeim bænum. Daglinsur í kallinn á svoleiðis dögum og sáraeinfalt að setja þær í. Mér leið eins og kóngi. Lausnir við öllu. Nú rúmum þremur árum síðar þarf meiri styrk og svo langar mig svakalega í nýja umgjörð. Mér var sagt að mæta og taka frúna með! Sennilega af fenginni reynslu og fyrri tregðu. Heimta samt nýja mynd með næsta pistli.