Fjörug árshátíð hjá Njarðvíkurskóla
Árshátíð Njarðvíkurskóla var haldin hátíðleg í gær, fimmtudaginn 10. mars í íþróttahúsinu í Njarðvík. Hátíðin þótt heppnast vel þar sem gleði ríkti hjá nemendum þegar þau tóku þátt í sýningunum og sýndu afrakstur æfinga undanfarinna vikna. Árshátíðin hófst með fjölmennu opnunaratriði þar sem nemendur á öllum aldri og starfsfólk komu samstíga á svið með líflegt atriði sem gaf tóninn fyrir árshátíðina. Danshöfundar voru Heiðrún Rós Þórðardóttir og Erika Dorielle Sigurðardóttir. Fjölmenni var á hátíðinni sem lauk með kaffiboði í Njarðvíkurskóla í boði foreldra.





