Fjórir rithöfundar kynna verk sín á Bókakonfekti
Laugardaginn 7. des. kl. 16.00 verður hið árlega Bókakonfekt haldið á Bókasafni Reykjanesbæjar. Nokkrir rithöfundar koma í safnið og lesa upp úr og kynna nýjustu verk sín. Þeir höfundar sem munu heiðra okkur með nærveru sinni að þessu sinni eru Guðjón Friðriksson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir og Þórarinn Eldjárn. Við þetta tækifæri mun Dagný Þ. Jónsdóttir sópransönkona einnig koma fram. Bókabúð Keflavíkur verður með sölubás á staðnum og getur fólk keypt bækur þessara höfunda og fengið þær áritaðar. Auk Bókasafnsins og Bókabúðarinnar standa menningarfulltrúi og Miðstöð símenntunar að uppákomunni.
Allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir og boðið er uppá kaffi og konfekt.
Allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir og boðið er uppá kaffi og konfekt.