Fjör í Þórkötlustaðarétt
Þórkötlustaðaréttir voru síðasta laugardag. Vel gekk að reka fé af fjalli. Líf og fjör var í réttunum enda veður hið besta og margir sem lögðu leið sína bæði til að aðstoða við að draga í dilka og einfaldlega að fylgjast með. Hilmar Bragi tók meðfylgjandi mynd í réttunum sl. laugardag. Nánar í Víkurfréttum á fimmtudaginn.