Fjör í fermingarafmæli
Árgangur 1971 í Keflavík hélt upp á 20 ára fermingarafmæli sitt á Hápunktinum í Reykjanesbæ um helgina. Mikil og góð stemmning var hjá hinum fjölmörgu sem mættu til að rifja upp gamla tíma. 80´s tónlistin var að sjálfsögðu í aðalhlutverki og fóru þeir frískustu mikinn á gólfinu.
Gaf kvöldið góð fyrirheit fyrir 25 ára fermingarafmælið sem verður eflaust enn skemmtilegra.
Myndasafnið má sjá efst á síðunni eða með því að smella hér.
VF-myndir/Anita