Bygg
Bygg

Mannlíf

Fjör á árshátíð Holtaskóla
Laugardagur 25. mars 2017 kl. 06:00

Fjör á árshátíð Holtaskóla

Það var líf og fjör á árshátíð Holtaskóla sem fram fór í gær í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Hefðinni samkvæmt voru 2., 4., 6., 8. og 10. bekkir með atriði.  Krakkarnir í 2. bekk sungu lagið Krummi svaf í klettagjá og nemendur í 4. bekk dönsuðu fyrir áhorfendur. Þá var röðin komin að nemendum í 6. bekk sem tóku atriði úr Harry Potter þar sem meðal annars var dansað og leikið. Nemendur í 8. bekk sýndu áhorfendum myndband þar sem skólalífið ásamt ýmsu öðru var tekið fyrir. Líkt og undanfarin mörg ár var rúsínan í pylsuendanum draugahús nemenda í 10. bekk. Draugahúsið vakti mikla kátínu og spennu og mátti sjá ýmsar tilfinningar spretta fram á ferð nemenda um draugahúsið.    

Bílakjarninn
Bílakjarninn