Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fjölskylduvæn fyrirtæki verðlaunuð
Mánudagur 16. júlí 2007 kl. 12:03

Fjölskylduvæn fyrirtæki verðlaunuð

Í ár mun Reykjanesbær standa fyrir vali á fjölskylduvænstu fyrirtækjum bæjarins í fjórða sinn og eru starfsmenn hvattir til að senda inn tilnefningar þar sem þeir færa rök fyrir hvernig þeirra fyrirtæki tekur tillit til fjölskyldunnar í rekstri sínum.

Verðlaunaveitingin er í samræmi við fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar og eru veittar viðurkenningar annars vegar fyrir fyrirtæki eða stofnun rekið af Reykjanesbæ og hins vegar fyrirtæki í einkarekstri staðsett í Reykjanesbæ.

Þau fyrirtæki sem hlotið hafa viðurkenningu síðustu þrjú árin eru:

2004
Fyrirtæki - Íslandsbanki í Keflavík
Stofnun - Leikskólinn Hjallatún

2005
Fyrirtæki - Sparisjóðurinn í Keflavík
Stofnun - Bókasafn Reykjanesbæjar

 

2006

Fyrirtæki - Karen ehf, Leikskólinn Gimli og Toyotasalurinn

Stofnanir - Íþróttamiðstöð Njarðvíkur og Akurskóli

Viðurkenningar verða veittar í tengslum við Ljósanótt 2007. 

Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 31. júlí 2007 til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI. Einnig má senda tilnefningar með netpósti á netfangið [email protected]

Mynd af vefsíðu Reykjanesbæjar

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024