Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fjölskylduvæn fyrirtæki verðlaunuð
Föstudagur 7. júlí 2006 kl. 11:00

Fjölskylduvæn fyrirtæki verðlaunuð

Í ár mun Reykjanesbær standa fyrir vali á fjölskylduvænstu fyrirtækjum bæjarins í þriðja sinn og eru starfsmenn hvattir til að senda inn tilnefningar þar sem þeir færa rök fyrir hvernig þeirra fyrirtæki tekur tillit til fjölskyldunnar í rekstri sínum.

Verðlaunaveitingin er í samræmi við fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar og eru veittar viðurkenningar annars vegar fyrir fyrirtæki eða stofnun rekið af Reykjanesbæ og hins vegar fyrirtæki í einkarekstri staðsett í Reykjanesbæ.

Þau fyrirtæki sem hlotið hafa viðurkenningu síðustu tvö árin eru:

2004
Fyrirtæki - Íslandsbanki í Keflavík
Stofnun - Leikskólinn Hjallatún

2005
Fyrirtæki - Sparisjóðurinn í Keflavík
Stofnun - Bókasafn Reykjanesbæjar

Viðurkenningar verða veittar í tengslum við Ljósanótt 2006. 

Tilnefningar berist fyrir 4. ágúst 2006 til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Kjarna, Hafnargötu 57, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆNT FYRIRTÆKI.  Einnig má senda tilnefningar á póstfangið [email protected]

Mynd frá afhendingu verðlaunanna á síðasta ári. Forsvarsmenn Sparisjóðsins og bókasafnsins ásamt fulltrúum Reykjanesbæjar

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024