Fjölskyldutónleikar með Gospelkrökkum í dag
Í tilefni 5 ára afmælis Gospelkrakka verða tónleikar í Stapanum, Reykjanesbæ, laugardaginn 25. maí kl. 16:00.
Ókeypis er inn á tónleikana en samskot verða til styrktar barnaheimilis Hjálpræðishersins í Paraguay, sem Ester og Wouter van Gooswilligen munu sjá um næstu árin. Tónleikarnir verða jafnframt kveðjutónleikar fyrir fjölskylduna van Goswilligen, en Ester sem er stofnandi „Gospelkrakka“ hefur stjórnað kórnum sl. 5 ár.
Hundruð barna og unglinga hafa verið með í „Gospelkrökkum“ þessi ár og eru þau sérstaklega boðin að koma á þessa tónleika og taka þátt í lokalagi tónleikanna „Gospelgleði“.