Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fjölskyldutónleikar í Stapa
Fimmtudagur 15. nóvember 2012 kl. 05:27

Fjölskyldutónleikar í Stapa

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar, Tónlistarfélag Reykjanesbæjar og Menningarsvið Reykjanesbæjar standa að fjölskyldutónleikum laugardaginn 17. nóvember n.k. í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna, FÍT. Á tónleikunum kemur fram Kammerhópurinn Shehérazade sem er blásarakvintett, ásamt Sigurþóri Heimissyni leikara, sem er sögumaður á tónleikunum. Tónleikarnir verða í Stapa kl.14.00 og eru u.þ.b. 50 mínútna langir.

Kammerhópurinn Shehérazade, sem er skipaður þeim Pamelu De Sense á þverflautu, Eydísi Franzdóttur á óbó, Kristínu Mjöll Jakobsdóttur á fagott, Rúnari Óskarssyni á klarinett og Emil Friðfinnssyni á franskt horn, var stofnaður árið 2008. Hópurinn hefur það að markmiði að flytja klassíska tónlist fyrir börn.
Kammerhópurinn Shehérazade hefur staðið fyrir fjölskyldutónleikaröð sem nefnist ,,Töfrahurð”. Tónleikaröðin er haldin í samvinnu við Salinn í Kópavogi og er tónleikunum ætlað að opna ævintýraveröld tónanna fyrir börnunum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nokkur íslensk tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir Kammerhópinn Shehérazade, en þau eru Oliver Kentish, Elín Gunnlaugsdóttir, Steingrímur Þórhallsson og Guðmundur Steinn Gunnarsson.
Sigurþór Heimisson er útskrifaður leikari frá Leiklistarskóla Íslands  og hefur leikið fjölda hlutverka í atvinnuleikhúsum landsins. Núna er  hann að leika í tveimur verkum sem flakka á milli grunn- og  framhaldsskóla. Hann kennir framsögn og raddbeitingu í Háskólanum í  Reykjavík.
Á efnisskrá tónleikanna verða verkin “Saga tréblásturshljóðfæranna” eftir Goldfaden og “Pétur og úlfurinn” eftir Prokofiev.

Pétur og úlfurinn er tónævintýri fyrir leiklestur og hljómsveit. Sagan segir frá Pétri sem stelst út á engið í óþökk afa síns. Þar glímir hann við ógnvættina ógurlegu; úlfinn, með hjálp fuglsins og kattarins, en úlfurinn hefur þá þegar gleypt vesalings öndina sem hafði synt í makindum á tjörninni. Flautan leikur fuglinn, óbóið öndina, klarinettið köttinn, fagottið afann, hornið úlfinn og svo skiptast öll hljóðfærin á að leika stef Péturs. Hin mikla athygli og vinsældir sem verkið fékk kom meira að segja höfundinum sjálfum á óvart.

Allir eru velkomnir á tónleikana.

Aðgangur er ókeypis.