Fjölskylduskemmtun A-listans sunnudaginn 21. maí kl. 15:00
A-listinn heldur fjölskylduskemmtun við kosningaskrifstofuna á Glóðinni sunnudaginn 21. maí kl. 15:00. Í boði er fjölbreytt og skemmtileg skemmtiatriði. Lúðrasveit Tónlistarskólans leikur, Snorri Idol stjarna og Vignir í Írafári stíga á stokk sem og félagar í Leikfélagi Keflavíkur. Jón Páll Eyjólfsson er kynnir og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sérstakur gestur. Boðið verður upp á grillpylsur og upp á hoppukastala og andlitsmálningu fyrir yngstu kynslóðina. Allir velkomnir!