Fjölskyldufólk stærsti markhópurinn
Hagkvæmni og hlýleiki í fyrirrúmi:
Kaffihúsið Knús Caffé opnaði á Ljósanótt að Hafnargötu 90 í Reykjanesbæ. Salurinn tekur allt að 100 manns í sæti og eigendur eru alsælir með viðtökurnar.
Umtalið besta auglýsingin
„Hugmyndin að nafninu kom til vegna þess að 13 ára dóttir okkar er svo mikill knúsari. Hún vill byrja daginn á að knúsa alla, þannig að á morgnana höfum við fengið kaffi og knús. Okkur fannst það passa vel saman,“ segja hjónin Guðmundur Þ. Þórðarson og Elwira Gibowicz. Þau segja viðtökur hafa verið vonum framar og umtalið líka. „Fólk taldi okkur örugglega bjartsýnasta fólk í heimi að opna kaffihús þar sem kaffihúsamenning er ekki mikil. Umtalið hefur reynst besta auglýsingin,“ segir Guðmundur og bætir við að þau hafi lagt upp með að veita persónulega og góða þjónustu og stilla verði í hóf. „Við erum ekki hluti af keðju með eitt verð, sama hvort það er í 101 Reykjavík eða úti á landi. Það verðlag finnst mér ekki henta okkar svæði og menningu. Það er ekkert eðlilegt kannski fyrir 5 manna fjölskyldu að þurfa að borga allt upp í 15.000 kall fyrir veitingar á kaffihúsi. Mér fannst það ekki hægt og vildi ekki hafa það þannig hér. Viljum líka frekar selja allar kökurnar á lægra verði en sitja uppi með þær.“
Móta staðinn með gestunum
Fyrsta sem gestir taka eftir þegar þeir koma inn er gott rými og hlýleiki, en það er einmitt það sem eigendurnir hafa viljað ná fram. „Já við vildum hafa þetta eins heimilislegt og unnt væri. Eitt sófasettið er íslenskt frá 1940, kallast hörpuskel, og annað er danskt frá 1930. Svo er hér kirkjubekkur yfir 100 ára gamall frá Bandaríkjunum. Bækurnar í gluggunum eru frá ömmu og afa, sumar að nálgast 100 ára aldurinn. Svo er skilrúmið í horninu heimatilbúið úr Keflavík,“ segir Guðmundur. Búnaðinn hafi þau fengið að mestu úr Góða hirðinum og á Bland.is auk þess sem þau bjuggu sjálf til ljósakrónurnar, gólfpanellinn utan um afgreiðsluborðið sé úr Bauhaus. „Við reyndum að gera þetta á eins hagkvæman hátt og hægt var. Vildum fá þennan gamla og heimilislega stíl.“ Á einum veggjanna hanga tómir rammar og blaðamanni lék forvitni á að vita ástæðu þess. „Já þarna áttu að vera myndir af fólki að knúsast og faðmast“ sagði Elwira hlæjandi, „en okkur fannst bara flott að hafa rammana eins og þeir eru. Það er alltaf hægt að setja eitthvað í þá og gestir hafa komið með ýmsar hugmyndir. Það er gefandi að móta hugmyndir að staðnum með gestunum og við erum opin fyrir öllu.“
Sonur „Danna pulsu“
Skærrauður litur er áberandi á staðnum og þau segja hann tengjast ítalska kaffiframleiðandanum sem þau kaupi af. „Þeir hjá Flugger mældu litinn á kaffiumbúðunum og við fengum sama lit á vegginn,“ segir Guðmundur. Einnig fer barnahornið ekki framhjá neinum. Sjálf eiga Guðmundur og Elwira þrjú börn og segja að áherslan hafi alltaf átt að vera á það að foreldrar gætu komið og slakað aðeins á á meðan börnin gætu notið sín. „Við vildum geta gefið börnunum gott svigrúm til að leika sér með hrein leikföng og hafa fjölbreytni. Við erum t.d. með borð frá leikskóla í Reykjavík og höfum sankað að okkur leikföngum víða að. Einnig hafa gestir komið með leikföng og gefið okkur óumbeðnir, svo að þau eru öll með sál,“ segir Elwira brosandi. Sjálf lauk hún fæðingarorlofi á árinu en starfaði áður í tapað/fundið deildinni í Leifsstöð. Hún segist hafa lært ýmislegt þar sem nýtist henni í dag, svo sem að hlusta á viðskiptavininn og finna út hvað hann vilji. Það skipti miklu máli. Guðmundur þekkir bransann ágætlega og segist hafa verið í veitingageiranum fyrir 20 árum og alist upp við slíkt á æskuheimilinu. Faðir hans var kallaður Danni pulsa og rak fyrsta pylsuvagninn í Keflavík sem hann seldi Villa 1978. Þaðan komu t.d. Villaborgararnir. „Pabbi sagði alltaf: „Gerðu pylsuna þannig að viðskiptavinurinn vilji koma aftur!“ Þar fékk maður þetta í blóðið - kúnnaþjónustuna og taktíkina og einnig margt í fingurna varðandi matargerð.“
Mömmuhópar koma aftur og aftur
Nánast allt sem þau selja er bakað á staðnum. Þau segja að þannig viti þau líka nákvæmlega hvað þau selja. Meðal annars glútenfrítt og ýmislegt annað til að koma til móts við sem flesta. „Uppskriftirnar koma einnig frá okkur. Það tók okkur þrjá mánuði að æfa okkur heima og prófa ýmislegt. Þurftum stundum að gráta og hringja í mömmu mína og ömmu hans til að fá ráð,“ segir Elwira hlæjandi. Guðmundur bætir við að það hafi þurft góða æfingu í að ná stjórn á kaffibaununum, möluninni og hvernig best sé að búa til gott kaffi. Þau segja fólk meðal annars koma eftir að hafa heyrt af bökunum sem þau selji. Einnig séu margir hópar sem komi aftur og aftur, m.a. mömmuhópar með börnin sín. „Mömmurnar eru ánægðar með plássið því þær geta komið inn með vagnana í stað þess að skilja þá eftir fyrir utan,“ segir Guðmundur. Á kvöldin hafi verið lokað kl. 20 en hópar geti setið lengur ef samið er um það með fyrirvara. Tekið sé mið af eftirspurn og væntingum en þó lokað í síðasta lagi kl. 23. „Það hefur komið fyrir að staðurinn hefur yfirfyllst en það er yfirleitt bara í svona 20 mínútur. Það er oftast um hádegisbilið og svo á milli kl. 15 og 16. Um daginn voru tónleikar hjá okkur með Guðmundi Rúnari [Lúðvíkssyni] og þá komust færri að en vildu.“ Guðmundur bætir við að í desember muni tónlistarmaðurinn Guðmundur Símonarson koma og einnig ætli Skyrgámur að koma og hitta krakkana. „Hópar af leikskólakrökkum, stundum 28-30 í einu, hafa komið hingað og fengið kakó og skúffuköku. 16. desember ætla 68 krakkar að koma frá leikskólanum Hjallatúni. Við tökum tillit til þeirra þarfa líka, t.a.m. ofnæmis og óþols og bjóðum upp á sojamjólk og slíkt fyrir þau sem vilja,“ segir Elwira.
Fengu það sem þau vildu
Þau Elwira og Guðmundur segja að í raun hafi upphafleg áhersla gengið upp - að fá fjölskyldufólk og aldurinn 30 ára og eldri sem helstu viðskiptavini. „Við ætluðum aldrei að stíla inn á bjór- eða áfengissölu þó að slíkt sé í boði í flöskum. Þetta átti að verða fransk-ítalskt kaffihús og sú menning virðist vera að vakna á Suðunesjum. Ef þetta virkar núna þá höfum við allt til að vinna. Það er okkar að sýna fram á að þörf sé á þessari þjónustu.“ Við staðinn séu næg bílastæði auðvelt að aka að húsinu við ein fjölförnustu gatnamót miðsvæðis í bænum. Kaffihúsið er bæði með heimasíðuna www.knuscaffe.com og Facebook-síðu þar sem t.d. er hægt að vita hvaða súpa er í boði virka daga. „Við viljum tengjast viðskiptavinunum, hafa þá ánægða og fá þá aftur. Það hefur tekist,“ segir Guðmundur sem þurfti svo að sinna gestum frá Lionsfélögunum sem komu til að selja þeim sælgætiskransa og happdrættismiða. Þeim var að sjálfsögðu tekið opnum örmum líka.
VF/Olga Björt ([email protected])