HSS
HSS

Mannlíf

Sunnudagur 2. júní 2002 kl. 18:03

Fjölskyldudagur Brunavarna Suðurnesja á slökkvistöðinni

Brunavarnir Suðurnesja efndu til fjölskyldudags en markmiðið var að vekja athygli á brunavörnum og samstarfi neyðarsveita á Suðurnesjum. Meðal þess sem var til synis voru björgunarbílar frá Björgunarsveitinni, björgunartjald og björgunarsveitamenn sýndu hvernig á að síga niður úr mikilli hæð. Þá reyndu slökkviliðsmenn að sprengja gas í gámi, en það heppnaðist ekki alveg nógu vel. Gestirnir sátu þó glaðir við sitt því í boði voru heitar pylsur og gos í tilefni dagsins sem heppnaðist mjög vel.
Bílakjarninn
Bílakjarninn