Fjölmenni við áramótabrennu í Garði
Fjölmargir lögðu leið sína að áramótabrennunni í Garði á gamlárskvöld. Gestirnir skiptu hundruðum en bálkösturinn í Garði var örugglega einn sá stærsti sem hlaðinn var hér á landi fyrir áramótin.
Það er Björgunarsveitin Ægir í Garði sem sér um brennuna í Garði og sveitarfélagið bauð svo upp á flugeldasýningu sem björgunarsveitin annaðist. Veður var með besta móti og logaði strax vel í brennunni.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi við brennuna á gamlárskvöld.